Fotbolti.net
15.11.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Skilur ekki hvers vegna Turpin beitti tvöfaldri refsingu

Skilur ekki hvers vegna Turpin beitti tvöfaldri refsingu
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel var gríðarlega ánægður eftir frækinn sigur Englendinga gegn besta landsliði heims í Þjóðadeildinni fyrr í kvöld.
Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Tíu Englendingar höfðu betur á Spáni

England heimsótti Spán og hafði betur í úrslitaleik um toppsæti riðilsins í Þjóðadeildinni. Englendingar voru talsvert sterkari aðilinn í Madríd allt þar til Elliot Anderson var rekinn af velli á 63. mínútu og vítaspyrna dæmd.

„Við sýndum stórkostlega frammistöðu og vorum sterkara liðið ellefu gegn ellefu. Það var mjög stór ákvörðun að gefa rautt spjald og vítaspyrnu og ég skil ekki hvers vegna dómarinn beitti tvöfaldri refsingu," sagði Tuchel að leikslokum, en Clément Turpin dómari hefur metið það sem svo að Anderson hafi ekki verið að reyna að ná boltanum.

„Síðasti hálftíminn var mjög langur verandi einum leikmanni færri, en ég vil ekki einblína á þann part. Það var svo margt jákvætt við okkar leik fyrir 60. mínútu, við skiluðum inn fullkominni frammistöðu frá upphafi til enda. Við sýndum mikið hugrekki í okkar leik, gáfum ekkert eftir og uppskárum eftir því. Þetta var fyllilega verðskuldaður sigur og hann hefði getað verið stærri ef ekki fyrir rauða spjaldið.

„Við vorum hugrakkir með boltann og þolinmóðir án boltans. Við vorum hungraðir á vallarhelmingi andstæðinganna og þolinmóðir á okkar eigin helmingi. Við vorum duglegir að loka öllum eyðum sem mynduðust og strákarnir sýndu fullkomna einbeitingu allan tímann. Þetta var stórkostleg frammistaða á hæsta gæðastigi.

„Við unnum leikinn en það sem skiptir mestu máli er að við sýndum frábæra frammistöðu. Ég get ekki hrósað strákunum nóg."


Tuchel var spurður hvort þessi leikur hafi minnt hann á einhverjum tímapunkti á tapleikinn gegn Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins, en Þjóðverjinn svaraði að leikurinn hafi frekar minnt sig á sigurinn gegn Mexíkó á Azteca leikvanginum, sem situr í rúmlega 2200 metra hæð yfir sjávarmáli, í 16-liða úrslitunum.

Tuchel var að lokum spurður hvort James Trafford væri búinn að hirða markmannsstöðuna af Jordan Pickford, en þjálfarinn segir að markmennirnir muni halda áfram að skiptast á leikjum.

„Þetta var besti klukkutími sem landsliðið hefur spilað undir minni stjórn."
Skilur ekki hvers vegna Turpin beitti tvöfaldri refsingu
Canon

Mynd: EPA

Skilur ekki hvers vegna Turpin beitti tvöfaldri refsingu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.