Heimild: KA
Anna Rakel Pétursdóttir hefur samið við IK Uppsala og mun því leika með liðinu á komandi tímabili.
Rakel var á mála hjá Linköpings á nýliðinni leiktíð og lék hún átján leiki með félaginu sem endaði í 5. sæti sænsku kvenna Allsvenskan.
Rakel var á mála hjá Linköpings á nýliðinni leiktíð og lék hún átján leiki með félaginu sem endaði í 5. sæti sænsku kvenna Allsvenskan.
IK Uppsala var stofnað árið 2017 og liðið tryggði sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð og mun því Rakel spila með liðinu í efstu deild.
Anna Rakel segist, í samtali við heimasíðu félagsins, vera spennt fyrir félaginu og telur þetta góðan stað til að halda þróun sinni sem leikmanni áfram.
Anna Rakel er uppalin hjá KA og Þór/KA, hún er í dag 21 árs gömul.
Meira um félagaskiptin má lesa á heimasíðu KA.
Athugasemdir