Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 15. desember 2019 18:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Baulað á pirraðan Özil þegar hann gekk af velli
Pirraður Özil
Pirraður Özil
Mynd: Getty Images
Göngutúr
Göngutúr
Mynd: Getty Images
Mesut Özil var skipt út af á 59. mínútu leiks Arsenal og Manchester City. Þegar þetta er skrifað eru um það bil tólf mínútur eftir og City leiðir, 0-3.

Arsenal liðið hefur ekki heillað í leiknum og City liðið gæti hæglega hafa skorað fleiri mörk.

Emile Smith Rowe var skipt inn á fyrir Özil og skiptingin vakti litla kátínu hjá Þjóðverjanum. Hann gekk af velli og í pirringi eftir göngutúrinn sparkaði hann í brúsa við hliðarlínuna og henti af sér hönskunum sínum.

Flestir muna eftir bauli og látunum í kringum Granit Xhaka skiptinguna frægu fyrr í vetur og það mátti heyra bæði baul og klöpp þegar Özil yfirgaf völlinn í dag.






Athugasemdir
banner
banner
banner
banner