Duncan Ferguson, bráðabirgðastjóri Everton, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Manchester United klukkan 14:00.
Seamus Coleman, Yerri Mina, Bernard og Tom Davies koma allir inn í liðið. Djibril Sidibe, Morgan Schneiderlin, Gylfi Þór Sigurðsson og Theo Walcott eru allir fjarri góðu gamni.
Walcott og Schneiderlin glíma við meiðsli en Ferguson hefur staðfest að Sidibe og Gylfi eru fjarri vegna veikinda.

Ekki liggur ljóst fyrir hvort að Mason Holgate byrji í miðverðinum eða sem djúpur miðjumaður við hlið Tom Davies. Everton gæti því spilað bæði 3-5-2 eða 4-4(2-2)-2.
🤒 | Duncan Ferguson confirms Gylfi Sigurdsson and Djibril Sidibe miss out on the squad after picking up a sickness bug. #MUNEVE
— Everton (@Everton) December 15, 2019
Athugasemdir