Philippe Coutinho var í miklu stuði þegar Bayern Munchen tók á móti Werder Bremen í gær, niðurstaðan 6-1 sigur þeirra fyrrnefndu.
Coutinho er á láni hjá Bayern frá Barcelona, hann skoraði þrennu í stórsigrinum í gær.
Það var ekki annað að heyra á leikmönnum Bayern Munchen í gær að þeir vilja hafa Coutinho áfram hjá félaginu.
„Ef þú horfðir á leikinn í dag þá hlýtur þú að sjá að við verðum að kaupa hann," sagði Alaba við blaðamann eftir leikinn í gær.
Robert Lewandowski var á sama máli.
„Það var magnað að fylgjast með því sem hann gerði í dag. Við þurfum leikmann eins og hann, ég er mjög ánægður með að hann sé að sýna sínar bestu hliðar hjá okkur," sagði Lewandowski.
Athugasemdir