Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 15. desember 2019 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Richardson vill sjá Grealish hjá Man Utd
Grealish fagnar marki sínu á Old Trafford 1. desember.
Grealish fagnar marki sínu á Old Trafford 1. desember.
Mynd: Getty Images
Kieran Richardson fyrrum leikmaður Aston Villa og Manchester United er mikill aðdáandi Jack Grealish sem leikur með fyrrnefnda félaginu.

Richardson telur Grealish myndi passa vel inn á miðjuna hjá Rauðu djöflunum.

„Jack Grealish býr yfir miklum hæfileikum, þegar ég var hjá Villa þá var hann að koma upp og það var mjög áberandi að þarna væri leikmaður á ferðinni sem ætti eftir að ná langt."

„Hann hefur ekki enn spilað fyrir enska landsliðið er það? Það mun gerast, ég efast ekki um það, hann er frábær leikmaður," sagði Richardson sem lagði skóna á hilluna árið 2016.

Athugasemdir
banner
banner