Fotbolti.net
24.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Vonsvikinn með fyrrum stjóra Chelsea - „Elsku vinur minn, þú ert klikkaður“

Liam Rosenior fagnaði í andlitið á stuðningsmönnum Strasbourg

Liam Rosenior fagnaði í andlitið á stuðningsmönnum Strasbourg

Canon

Mynd: EPA

Dimitri Liénard, goðsögn franska fótboltafélagsins Strasbourg, segist ótrúlega vonsvikinn með hegðun þjálfarans Liam Rosenior.
Rosenior, sem stýrir Paris FC í dag, fagnaði ákaflega fyrir framan stuðningsmenn Strasbourg eftir 2-1 sigur liðsins um helgina.

Atvikið vakti mikla athygli, ekki síst í ljósi þess að Rosenior stýrði Strasbourg áður og náði þar ágætum árangri áður en hann tók við Chelsea í byrjun þessa árs, starfi sem hann entist ekki lengi í áður en hann tók við Paris í sumar.

Mikil læti urðu eftir leikinn þegar Rosenior ögraði stuðningsmönnunum. Hann sagði síðar að þeir hefðu hreytt fúkyrðum að fjölskyldu hans en baðst þó afsökunar á framkomu sinni.

Liénard, sem er mikil goðsögn hjá Strasbourg, segir hegðun Rosenior hafa verið óásættanlega.

„Ég líð ekki að það sé verið að móðga fjölskyldu hans, en hvað var hann eiginlega að hugsa?“

„Ég held að hann sé búinn að gleyma því að í síðustu fimm leikjum hans með Strasbourg, og þá teljum við ekki Evrópuleikina gegn Aberdeen og Bro-Brocolis, eða hvað sem það heitir, töpuðum við þremur leikjum og gerðum tvö jafntefli. Síðasti sigur hans með liðinu kom í nóvember 2025 gegn Lille.“

„Hann þakkaði stuðningsmönnunum ekki einu sinni fyrir á síðasta blaðamannafundi sínum í janúar. Hvað hélt hann eiginlega? Að þeir myndu reisa styttu af honum og heiðra hann? Að við myndum rúlla út rauða dreglinum fyrir þennan herramann? Að við myndum opna kampavínsflösku fyrir hann?“

„Elsku vinur minn, þú ert klikkaður. Ég held að hann hafi gleymt gildum félagsins sem snúast um auðmýkt, virðingu og mikla vinnu.“

„Á blaðamannafundinum talaði hann um að vinna Meistaradeildina og þá yrði hann stoltur. Ertu að grínast í mér? Þú ferð til Chelsea á miðju tímabili og tekur varnarmann með þér sem var kletturinn í vörn okkar (Mamadou Sarr) og spilar honum í einum leik. Þú hlýtur að vera að grínast, eða ég vona það allavega. Svo kemur þú og lest okkur pistilinn,“
sagði Liénard.

Vonsvikinn með fyrrum stjóra Chelsea - „Elsku vinur minn, þú ert klikkaður“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.