Fotbolti.net
24.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Tekur við sínu sjöunda félagi á Spáni (Staðfest)

Javier Aguirre er tekinn við Valencia

Javier Aguirre er tekinn við Valencia

Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Valencia hefur tilkynnt ráðningu mexíkóska þjálfarans Javier Aguirre, en þetta verður sjöunda félagið sem hann stýrir á Spáni.
Valencia rekur framkvæmdastjórann og þjálfarateymið (Staðfest)
TENGT EFNI

Valencia rekur framkvæmdastjórann og þjálfarateymið (Staðfest)

Aguirre hætti með mexíkóska landsliðið eftir heimsmeistaramótið í sumar.

Hann hefur áður þjálfað Atlético Madríd, Osasuna, Real Zaragoza, Leganes og Mallorca á Spáni, auk þess að stýra landsliðum Egyptalands og Japans.

Carlos Corberan var rekinn frá Valencia fyrir nokkrum vikum eftir ömurlega byrjun á tímabilinu og hefur félagið nú ráðið Aguirre í hans stað.

Braulio Vazquez tekur jafnframt við sem yfirmaður íþróttamála en Oscar Sanchez, sem hefur stýrt aðalliðinu í síðustu leikjum, snýr aftur til starfa með unglinga- og varaliði félagsins.

Valencia er í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir sjö umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.