Fotbolti.net
24.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ancelotti: Hann er ekki upp á sitt besta núna

Vini Jr

Vini Jr

Canon

Mynd: EPA

Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, er sannfærður um að Vinicius Junior muni finna taktinn á næstunni eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Vini Jr hefur verið gríðarlega mikilvægur bæði Real Madrid og brasilíska landsliðinu undanfarin ár, en hefur fengið nokkra gagnrýni fyrir byrjun sína á tímabilinu.

Hann hefur aðeins skorað eitt mark í átta leikjum, en lagt upp þrjú til viðbótar.

Ancelotti hefur þó litlar áhyggjur af Brassanum sem er í landsliðshópnum fyrir vináttuleiki gegn Ástralíu, Indlandi og Singapúr í þessu landsliðsverkefni.

„Hann er kannski ekki upp á sitt besta núna, en gæði Vini Jr eru óumdeilanleg. Sem dæmi þá spilaði hann frábærlega á heimsmeistaramótinu og sem leikmaður geturðu ekki alltaf verið upp á þitt besta.“

„Hann er stórkostlegur leikmaður og meðal þeirra bestu í heimi. Ég er viss um að hann verður upp á sitt besta í næstu leikjum. Ég hef fulla trú á honum,“
sagði Ancelotti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.