Fotbolti.net
15.12.25 - 10:39
Elvar Geir Magnússon

Telja að Afríkutríóið verði með í kvöld - Líklegt byrjunarlið Man Utd

Líklegt byrjunarlið Manchester United.

Líklegt byrjunarlið Manchester United.

Canon

Mynd: MEN

Lokaleikurinn í 16. umferð úrvalsdeildarinnar fer fram á Old Trafford í kvöld. Manchester United getur unnið annan leikinn í röð þegar Bournemouth kemur í heimsókn.

Ekki hefur verið staðfest hvort Noussair Mazraoui, Amad Diallo og Bryan Mbeumo verði með í leiknum en þeir eru á leið í Afríkukeppnina og nú er dagurinn þar sem félagslið þurfa að sleppa leikmönnum.

Manchester Evening News birtir líklegt byrjunarlið Manchester United fyrir kvöldið og býst við að leikmennirnir þrír verði með áður en þeir skella sér út á flugvöll.
Amorim veit ekki hvort Afríkutríóið geti verið með
TENGT EFNI

Amorim veit ekki hvort Afríkutríóið geti verið með

Í líklegu byrjunarliði er Mazraoui hluti af þriggja miðvarða línunni en þeir Matthijs de Ligt og Harry Maguire eru enn fjarri góðu gamni.

Amad er stillt upp í vængbakverðinum og Mbeumo í sóknarlínunni.

Líklegt byrjunarlið Man Utd: Lammens; Mazraoui, Heaven, Shaw; Amad, Casemiro, Fernandes, Dalot; Mbeumo, Mount; Cunha
Bryan Mbeumo.

Bryan Mbeumo.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.