Fotbolti.net
16.01.17 - 16:39
Magnús Már Einarsson

Árni Vill til Jönköpings (Staðfest)

Árni í treyju Jönköpings.

Árni í treyju Jönköpings.

Canon

Mynd: Jönköpings

Sænska félagið Jönköpings Södra hefur keypt Árna Vilhjálmsson frá norska félaginu Lilleström. Árni hefur skrifað undir þriggja ára samning við Jönköpings en félagið tilkynnti þetta í dag.
„Að mínu mati er Jönköpings Södra betri valkostur en Lillestöm fyrir mig því að liðið spilar fótbolta sem passar betur við leikstíl minn,\" sagði Árni eftir undirskrift.

„Ég ætla að verða betri leikmaður hjá Jönköpings Södra og hjálpa liðinu um leið.\"

Árni yfirgefur herbúðir Lilleström þar sem hann var í tvö ár en náði ekki að festa sig í sessi, meðal annars vegna meiðsla. Í fyrra var hann lánaður í uppeldisfélag sitt Breiðablik og lék vel í Pepsi-deildinni.

Árni er 22 ára og á 32 landsleiki og níu mörk að baki fyrir yngri landsliðin.

Jönköpings Södra hafnaði í 12. sæti á síðustu leiktíð af sextán liðum. Liðinu gekk illa í markaskorun og vonast er til að Árni geti bætt úr því.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.