16.01.17 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Dragan Kazic ráðinn aðstoðarþjálfari Víkings R. (Staðfest)

Dragan Kazic.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Dragan Kazic.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Dragan Kazic hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Víkingi R. í Pepsi-deildinni.
Dragan mun vera aðstoðarmaður Milos Milojevic á komandi tímabili.

„Ég veit að hann er mjög góður þjálfari og hefur svipaða sýn á fótbolta og ég,\" sagði Milos við Fótbolta.net í dag.
„Hann hefur verið í sjö ár á Íslandi áður og það er auðveldara að fá svona þjálfara sem áttar sig á deildinni og aðstæðum frekar en að fá einhvern alveg glænýjan.\"
Dragan er 56 ára gamall en hann hefur áður verið aðstoðarþjálfari hjá Grindavík, ÍBV og Val. Hjá ÍBV var hann aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar, núverandi landsliðsþjálfara.
Árið 2009 var Dragan einnig aðalþjálfari hjá BÍ/Bolungarvík í 2. deildinni.