Fotbolti.net
16.01.17 - 14:49
Magnús Már Einarsson

Gary Martin til Lokeren (Staðfest)

Gary Martin hress með treyju Lokeren.

Gary Martin hress með treyju Lokeren.

Canon

Mynd: Lokeren

Belgíska félagið Lokeren hefur gengið frá kaupum á framherjanum Gary Martin frá Víkingi Reykjavík. Gary skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Lokeren nú rétt í þessu en félagið á möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár síðar meir.

Félögin komust að samkomulagi um kaupverð á dögunum og Gary var í síðustu viku með Lokeren í æfingabúðum á Spáni.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Lokeren, þekkir Gary vel en hann fékk enska framherjann til KR á sínum tíma. Í sumar fékk Rúnar síðan Gary til norska félagsins Lilleström á láni.

Víkingur keypti Gary frá KR fyrir tæpu ári síðan. Síðari hlutann á síðasta tímabili var hann á láni hjá Lilleström en hann hjálpaði liðinu að halda sæti sínu í norsku úrvalsdeildinni.

Íslensku landsliðsmennirnir Ari Freyr Skúlason og Sverrir Ingi Ingason spila með Lokeren en liðið er í 10. sæti af 16 liðum í belgísku úrvalsdeildinni. Deildin hefst aftur um næstu helgi eftir stutt frí.

Lokeren hefur einungis skorað 20 mörk í 21 leik í belgísku úrvalsdeildinni í vetur en Gary á að reyna að hjálpa til við að breyta þeirri tölfræði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.