Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. janúar 2020 06:00
Aksentije Milisic
Barca lánar Todibo til Schalke (Staðfest) - Geta keypt hann á 25 milljónir
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur lánað Jean-Clair Todibo til Schalke og verður hann þar út tímabilið. Schalke borgar Barcelona 1,5 milljónir evra fyrir lánið og mun liðið einnig borga laun leikmannsins.

Schalke getur keypt Tobido fyrir 25 milljónir evra eftir að lánstímanum líkur. Ef Schalke kaupir Tobido þá verður ákvæði í samningnum sem gerir Barcelona kleift að kaupa leikmanninn til baka á 50 milljónir.

Todibo er nýorðinn tvítugur en hann er franskur miðvörður sem getur einnig spilað stöðu miðjumanns.

Todibo er uppalinn hjá Les Lilas en hann gekk í raðir Toulouse árið 2016 og var þar þangað til að Barcelona keypti leikmanninn í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner