Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. janúar 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sonur Robbie Keane stal boltanum, skoraði og starði á áhorfendur
Mynd: Getty Images
Afskaplega skondið atvik átti sér stað fyrir leik Middlesbrough og Tottenham í fyrri leik liðanna í ensku bikarkeppninni.

Liðin mættust aftur í gær í ensku bikarkeppninni eftir jafntefli í upprunalegri viðureign félaganna fyrr í janúar.

Boltinn var á miðju vallarins áður en leikur hófst um þarsíðustu helgi. Þá kom ungur drengur, klæddur treyju Middlesbrough og rak boltann í átt að öðru markinu.

Á Reddit er ritað um að þetta sé sonur Robbie Keane, fyrrum framherja Tottenham. Sonur hans leiddi leikmann Boro inn á völlinn.

Sonurinn skoraði og stoppaði svo við markið. Stóð grafkyrr og starði í stúkuna. Skondið atvik sem má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner