Viðureign Leicester og Southampton fer að hefjast. Liðin mætast í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Leicester og Southampton hafa bæði verið að spila góðan fótbolta á tímabilinu og eru aðeins þrjú stig sem skilja liðin að í Evrópubaráttunni.
Brendan Rodgers breytir engu í byrjunarliði Leicester eftir 2-1 sigur gegn Newcastle í síðustu umferð.
Ralph Hasenhüttl gerir þrjár breytingar eftir sigur gegn Liverpool í síðustu umferð.
Danny Ings dettur úr liðinu þar sem hann er í sóttkví og kemur Che Adams inn í staðinn. Þá fer Alex McCarthy aftur í markið og kemur Will Smallbone inn fyrir Moussa Djenepo.
Þetta er aðeins annar byrjunarliðsleikur Smallbone á deildartímabilinu.
Leicester: Schmeichel, Justin, Castagne, Evans, Fofana, Ndidi, Tielemans, Albrighton, Maddison, Barnes, Vardy.
Varamenn: Ward, Soyuncu, Iheanacho, Perez, Amartey, Under, Ricardo, Mendy, Thomas.
Southampton: McCarthy, Walker-Peters, Bertrand, Stephens, Bednarek, Diallo, Smallbone, Ward-Prowse, Armstrong, Walcott, Adams.
Varamenn: Forster, Long, Valery, Vokins, N'Lundulu, Ferry, Tchaptchet, Watts, Chauke.
Athugasemdir