Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 16. janúar 2021 10:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil og Arsenal ná saman um riftun á samningi
Özil er á leið til Tyrklands.
Özil er á leið til Tyrklands.
Mynd: Getty Images
Arsenal og Mesut Özil hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins. Þetta segir David Ornstein, blaðamaður The Athletic.

Búist er við því að hinn 32 ára gamli Özil ferðist til Tyrklands um helgina og gangi þar frá skiptum sínum til Fenerbahce.

Özil átti að þéna um 7 milljónir punda hjá Arsenal frá þessum tímapunkti, þangað til samningur hans rennur út í júní. Hann og félagið komust hins vegar að samningi um riftun á samningi hans snemma. Ekki kemur fram í grein The Athletic hvað Arsenal þarf að greiða honum mikið.

Özil hefur engan veginn verið inn í myndinni hjá Arsenal á þessu tímabili og nú mun hann leita á önnur mið eftir sjö og hálft ár hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner