16.02.18 - 12:30
Magnús Már Einarsson
FH fær tvo leikmenn frá Bandaríkjunum (Staðfest)

Mynd: FH

Mynd: FH

FH hefur gert samninga við tvo leikmenn frá Bandaríkjunum um að leika með liðinu næsta sumar. Þetta eru þær Tatiana Saunders og Hanna Barker.
Tatiana er markmaður, sem kom til landsins í janúar og æfði með liðinu í rúma viku. Í kjölfarið ákvað FH að bjóða henni samning um að spila með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Hún er einnig með breskt ríkisfang og á að baki leiki með yngri landsliðum Englands.
Tatiana fær það verðuga verkefni að leysa Lindsey Harris af hólmi en hún fékk einungis 24 mörk á sig þegar FH endaði í 6. sæti í Pepsi-deildinni í fyrra.
Hanna Barker er sóknarmaður sem kemur til FH beint úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hún hefur spilað við góðan orðstír undanfarin ár og hefur jafnan verið fyrirliði í sínum liðum.
„Þessir leikmenn eru kærkomin viðbót við leikmannahóp FH fyrir komandi átök í Pepsí deildinn og við bjóðum þær velkomnar í Krikann,\" segir á Facebook síðu FH.