Fotbolti.net
16.02.18 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Fyrrum aðstoðarmaður Mourinho tekur við Barnsley (Staðfest)

Jose Morais ræðir við Jose Mourinho.

Jose Morais ræðir við Jose Mourinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Barnsley í ensku Championship deildinni hefur ráðið Jose Morais sem knattspyrnustjóra.
Hinn 52 ára gamli Morais hefur áður verið aðstoðarstjóri Jose Mourinho hjá Inter, Real Madrid og Chelsea.

Morais hefur einnig stýrt liðum í Sádi-Arabíu, Túnis, Tyrklandi og Grikklandi.

Hann tekur við Barnsley af Paul Heckingbottom sem hætti í síðustu viku til að taka við Leeds.

Barnsley er í fallsæti í ensku Championship deildinni, stigi á eftir Hull.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.