City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 10:15
Elvar Geir Magnússon
Ofurtölvan rýnir í Meistaradeildarvonir Liverpool
Richarlison fagnar marki sínu.
Richarlison fagnar marki sínu.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það var högg fyrir Liverpool að fá á sig jöfnunarmark gegn Tottenham í uppbótartíma í gær enda er liðið í harðri baráttu um að ná Meistaradeildarsæti fyrir næsta tímabil, baráttu þar sem lítið má bregða út af.

Mun Liverpool ná Meistaradeildarsæti að lokum? Sjáum hvað ofurtölva Opta hefur reiknað út:

Í fyrsta lagi verður að horfa til þess að ekki er staðfest hvort England fái fjögur eða fimm Meistaradeildarsæti. England leiðir baráttuna um að fá fimm sæti en ömurleg úrslit enskra liða í síðustu viku gera það að verkum að ekkert er í hendi.

Það gæti skipt sköpum fyrir Liverpool að Englendingar fái fimmta sætið sæti í Meistaradeildinni. Ofurtölvan telur 59,17% líkur á að Liverpool endi í topp fimm en aðeins 33,29% að liðið endi í topp fjórum.

Líkur á að enda í topp fjórum:
Man City: 99.94%
Man Utd: 80.59%
Aston Villa: 56.49%
Liverpool: 33.29%
Chelsea: 23.15%
Brentford: 5.18%

Líkur á að enda í topp fimm:
Man City: 99.98%
Man Utd: 93.03%
Aston Villa: 79.46%
Liverpool: 59.17%
Chelsea: 47.53%
Brentford: 14.4%
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner