Ítalski bakvörðurinn Michael Kayode opnaði markareikninginn með enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford er hann kom liðinu í 1-0 gegn botnliði Wolves í kvöld.
Kayode kom til Brentford fyrir rúmu ári síðan og er að spila sitt annað tímabil með liðinu.
Hann er mikilvægur hlekkur í liðinu og helst þekktur fyrir löng innköst sín, en hann skoraði loks sitt fyrsta deildarmark í kvöld.
Keane Lewis-Potter átti stórkostlega fyrirgjöf inn á teiginn sem Igor Thiago missti af en Kayode var fyrir aftan hann og átti þennan þrumuskalla sem Jose Sá kom engum vörnum við.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér
Athugasemdir


