Franski miðvörðurinn Leny Yoro segist vona að Harry Maguire muni framlengja samning sinn við Manchester United.
Maguire verður samningslaus eftir þetta tímabil en það er algerlega óráðið hvort hann verði áfram hjá félaginu eða ekki.
Hann hefur upplifað hæðir og lægðir. Á tíma fór hann í gegnum mjög erfiða tíma en stóð af sér storminn og verið fyrirmynd fyrir aðra leikmenn í klúbbnum.
Yoro segist hafa lært margt af Maguire og vonar hann svo innilega að hann verði áfram.
„Það er gott fyrir okkur að hafa Harry í liðinu. Það væri gott fyrir okkur að halda honum áfram á næsta tímabili þannig ég vona að hann mun framlengja samning sinn og vera áfram. Sjáum til hvað gerist.“
„Hann hefur okkur mörg ráð og líka með alla þessa reynslu sem hann hefur. Hann talar mikið við mig inn á vellinum og hefur reynst mér mjög vel.“
„Harry talar alltaf við mig og stundum fyrir leiki, í hálfleik, hvernig best sé að staðsetja sig þannig það er mjög gott fyrir mig að spila með honum,“ sagði Yoro.
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro hefur tilkynnt að hann fari frá United eftir þetta tímabil en Yoro vildi halda honum enda með meiri reynslu en allir í hópnum.
„Við vildum allir halda honum því hann er svo mikilvægur leikmaður fyrir okkur og hann sýndi það aftur gegn Aston Villa. Hann hefur reynslu sem enginn annar hefur í búningsklefanum. Hann hefur unnið allt, sem hefur hjálpað okkur mikið, bæði innan sem utan vallar,“ sagði Yoro.
Athugasemdir



