Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 16. apríl 2019 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefð brotin - Ronaldo ekki í undanúrslitin
Mynd: Getty Images
Það er orðin hefð fyrir því að Cristiano Ronaldo komist í undanúrslit Meistaradeildarinnar á ári hverju. Sú hefð var brotin í kvöld þegar Ajax sló út Ronaldo og félaga í Juventus.

Ajax mætir annað hvort Manchester City eða Tottenham í undanúrslitunum.

Sjá einnig:
Twitter - Skemmtilegasta liðið í dag

Þetta verður í fyrsta sinn í níu ár þar sem Ronaldo verður ekki í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Síðast þegar það gerðist var Ronaldo á sinni fyrstu leiktíð hjá Real Madrid.

Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Juventus og Ronaldo. Juventus var talið eitt sigurstranglegasta liðið í keppninni í ár, ef ekki það sigurstranglegasta.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner