Gylfi Þór Sigurðsson er að eiga stórgóðan leik fyrir Everton gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.
Gylfi er að gera sínum gömlu félögum lífið leitt en aftur á móti þá er Harry Kane að gera Everton lífið leitt.
Gylfi skoraði úr vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum sem má sjá hérna.
Hann skoraði sitt annað mark í seinni hálfleiknum en það var aðeins flottara. Hann fékk boltann skoppandi inn í teig og kláraði ótrúlega vel fram hjá Hugo Lloris.
Síðara mark Íslendingsins má sjá hérna.
Kane er búinn að skora tvennu fyrir Tottenham og er staðan 2-2 þegar þessi frétt er skrifuð.
Athugasemdir