Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 22:51
Brynjar Ingi Erluson
Alex Freyr á skotskónum í risasigri lærisveina Sigga Ragga
Alex Freyr skoraði í stórsigri
Alex Freyr skoraði í stórsigri
Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn
Alex Freyr Elísson skoraði sitt fyrsta mark fyrir færeyska liðið NSÍ Runavík er það slátraði EB/Streymur, 7-1, í 16-liða úrslitum bikarsins í kvöld.

Framarinn gekk í raðir NSÍ Runavík frá Njarðvík fyrir nokkrum mánuðum síðan og hefur spilað fimm deildarleiki með liðinu á þessari leiktíð.

Hann var í byrjunarliðinu í kvöld þegar það heimsótti EB/Streymur í bikarnum og tók hann aðeins tæpar tvær mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Snemma leiks gerðu heimamenn sjálfsmark áður en Alex tvöfaldaði forystuna.

NSÍ skoraði fimm mörk til viðbótar í leiknum og kom sér þægilega áfram í 8-liða úrslitin.

SIgurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrum þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er þjálfari NSÍ, en hann tók við liðinu í desember.
Slapp
banner
banner