Unai Emery, stjóri Aston Villa, var í skýjunum með að koma liðinu í undanúrslit Evrópudeildarinnar í kvöld, en nú bíður þeirra erfitt verkefni gegn Nottingham Forest, sem er eins og Villa, með ríka sögu í Evrópu.
Villa vann sannfærandi 4-0 sigur á Bologna og samanlagt 7-1 í einvíginu.
Ollie Watkins skoraði hundraðasta mark sitt í Villa-treyjunni og þá komust þeir Morgan Rogers, Emi Buendia og Ezri Konsa einnig á blað.
Næst er það undanúrslitin en þar mun Villa mæta Nottingham Forest sem sló Porto út.
„Ég er ótrúlega ánægður. Við vorum skipulagðir og reyndum að fylgja okkar hugmyndafræði og leikstíl, sem er ekkert allt of auðvelt gegn liði eins og Bologna.“
„Við erum bara svo ánægðir með hvernig við erum að spila í þessari keppni og þetta var algerlega stórkostlegt í kvöld. Núna spilum við í undanúrslitunum, en þetta verður mjög erfitt gegn Nottingham Forest.“
„Ég veit hversu erfitt það er að vinna Evrópukeppni. Þær eru mjög mikilvægar fyrir okkur og það hefur gefið mér svo mikið á þjálfaraferlinum. Núna vil ég upplifa það með leikmönnum og stuðningsmönnum Aston Villa.“
„Forest er líka með sögu í Evrópu og þeir hafa unnið Evrópubikarinn eins og Aston Villa, þannig þetta verður mjög sérstakt fyrir bæði félög. Við munum njóta þess að spila í undanúrslitunum,“ sagði Emery.
Forest vann Evrópukeppni meistaraliða tvö ár í röð, 1979 og 1980 á meðan Villa vann keppnina árið 1982.
