Thierry Henry, sérfræðingur á CBS og fyrrum leikmaður Arsenal, var með eldræðu um sína menn eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Sporting í Meistaradeildinni í gær. Jafnteflið dugði til að tryggja liðinu sæti í undanúrslitum annað árið í röð.
Arsenal er á toppi úrvalsdeildarinnar, með sex stiga forystu á Man City, liðin mætast um helgina og það er ljóst að það er gríðarlega mikilvægur leikur en Man City á leik til góða.
Arsenal er á toppi úrvalsdeildarinnar, með sex stiga forystu á Man City, liðin mætast um helgina og það er ljóst að það er gríðarlega mikilvægur leikur en Man City á leik til góða.
MIkel Arteta talaði um að hann vildi sjá eldmóð í liðinu og stuðningsmönnum fyrir leikinn í gær en liðið hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu.
„Ég vil sjá þennan eldmóð á Etihad. Það er auðvelt að tala, farið til Manchester og sýnið það. Ég trúi því sem Arteta sagði en þegar þú talar svona verður þú að standa við það, ég sá það ekki í kvöld," sagði Henry.
„Ég er mjög ánægður að við séum komnir í undanúrslitin, við höfum aldrei unnið Meistaradeildina, ég vann hana aldrei svo ég get ekki talað um það. Ég vann deildina hins vegar, vinnið í Manchester, ég vil sjá þennan eldmóð þar. Ég trúi Arteta."
„Þetta er stærsta tækifærið í lfínu, ekki bara til að þagga niður í öllum, heldur að sanna fyrir ykkur sjálfum að við getum þetta og þá mun fólk ekki nota orð sem ég vil ekki nota. Hann talaði um eldmóð, ég vil sjá þennan eldmóð á Etihad," sagði Henry að lokum.



