Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 23:49
Brynjar Ingi Erluson
Messi kaupir spænskt félag
Lionel Messi er nýr eigandi UE Cornella
Lionel Messi er nýr eigandi UE Cornella
Mynd: EPA
Lionel Messi, einn besti leikmaður allra tíma, hefur fest kaup á spænska fimmtu deildarfélaginu UE Cornella.

UE Cornélla var sett á laggirnar árið 1951 í sjálfstjórnarsvæðinu Katalóníu, sama svæði og Barcelona, fyrrum félag Messi, kemur frá.

Margir leikmenn hófu ferilinn hjá félaginu áður en þeir fóru síðar í stærri akademíur en þar má nefna þá David Raya, Jordi Alba, Keita Balde og Gerard Martin.

Síðustu ár hafa fjölmargir fótboltamenn verið að fjárfesta í neðri deildarfélögum og er Messi nú kominn í þann hóp, en hann hefur keypt 100 prósent hlut í Cornélla.

Unglingastarfið heillaði Messi sem ætlar að halda áfram styrkja þann grunn sem hefur verið lagður og fjárfesta í hæfileikamótun félagsins. Nýr og spennandi kafli er framundan hjá Cornélla sem er í þriðja sæti E-riðils fimmtu deildar með 55 stig eftir 30 leiki og á raunhæfan möguleika á að komast upp um deild.


Slapp
banner