Fotbolti.net
16.05.17 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Agnar Darri í Víking R. (Staðfest)

Agnar fagnar marki með Víkingi.

Agnar fagnar marki með Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. hefur fengið kantmanninn Agnar Darra Sverrisson í sínar raðir frá Þór á nýjan leik.

Félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.
Agnar Darri sleit krossband um mitt sumar í fyrra og hefur verið frá keppni síðan þár.

Hann hafði skorað tvö mörk í átta leikjum með Þór áður en hann meiddist.

Hinn 22 ára gamli Agnar Darri kom til Þórs frá Víkingi R. fyrir síðasta tímabil en sumarið 2015 skoraði hann þrjú mörk í níu leikjum með Víkingi í Pepsi-deildinni.

Agnar hefur lengst af á ferlinum leikið með Víkingi en hann hefur einnig spilað með Magna Grenivík og BÍ/Bolungarvík auk Þórs í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.