Fotbolti.net
16.05.17 - 10:45
Fótbolti.net

Hófið - Joe and the Juice snúðurinn af

Uppgjör 3. umferðar

Feðgar umferðarinnar: Sonur Gunnlaugs Jónssonar var boltastrákur á KR-vellinum þegar pabbi hans mætti með lærisveina sína í ÍA í heimsókn.

Feðgar umferðarinnar: Sonur Gunnlaugs Jónssonar var boltastrákur á KR-vellinum þegar pabbi hans mætti með lærisveina sína í ÍA í heimsókn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er hefði fyrir því hér á Fótbolta.net að halda lokahóf eftir hverja umferð í Pepsi-deild karla. Þér er að sjálfsögðu boðið.
Það jákvæða við umferðina: Baráttan í deildinni þéttist enn frekar með úrslitum umferðarinnar. Þrjú lið eru jöfn á toppnum með sjö stig; Stjarnan, KA og Valur.



Það neikvæða við umferðina: Það var ótrúlega hörð barátta um að komast í EKKI liðið. Of margir sem gerðu tilkall og þurfa að girða sig í brók.



Fólk fékk mest fyrir 2.000 kallinn: Setjum þetta á Akureyringa sem fóru og sáu fyrsta heimaleik sinna manna í efstu deild í 13 ár. Þeir sáu flottan sigur gegn Fjölni.



EKKI lið umferðarinnar:




Það sem kom mest á óvart: Ólsarar komu skemmtilega á óvart, fóru til ferskra nýliða í Grindavík og sóttu öll stigin. Svipurinn á Ejub Purisevic eftir leik sagði allt um það hversu kærkomin stigin voru.



Staðreynd umferðarinnar: Grindavík tapaði á sunnudaginn sínum fyrsta deildarleik á heimavelli síðan í september árið 2015. Grindvíkingar töpuðu ekki leik á heimavelli í Inkasso-deildinni í fyrra og liðið gerði jafnefli við Stjörnuna í fysta leik í Pepsi-deildinni í ár.



Einn sem var rosalega jákvæður: Sigurði Víðissyni, bráðabirgðaþjálfara Breiðabliks, fannst frábært að Blikar hafi gefið Stjörnunni leik á Kópavogsvelli. Kröfurnar eru ekki miklar á þá grænu þessa dagana.



Grýlumorð umferðarinnar: Með sigrinum vann Stjarnan loksins sigur á Kópavogsvelli eftir 23 ára bið. Þá var þetta í fyrsta sinn sem Rúnar Páll Sigmundsson nær sigri gegn Blikum sem þjálfari Garðabæjarliðsins.



Einn sem blés á gagnrýnisraddir: Kristján Guðmundsson fékk sína menn upp á tærnar gegn Víkingum. ÍBV sýndi baráttu og vilja, annað en í Garðabænum.



Klipping umferðarinnar:Bergsveinn Ólafsson, FH.

\"Mér fannst tími til að taka Joe and the Juice snúðinn af\" - @BergsveinnOlafs #fotboltinet pic.twitter.com/fRq52z7Z6M

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) May 15, 2017




Kaflaskiptasti leikur síðari ára: Stórleikur Vals og FH. Valur með fótboltasýningu í fyrri hálfleik en FH-ingar áttu allan seinni hálfleikinn. Jafntefli sanngjörn úrslit.



Heiðursverðlaun umferðarinnar: KR-ingar. Við höfum kallað eftir því að félögin bæti í umgjörðina og KR bauð upp á hressandi hoppukastala á félagssvæði sínu.



Góðæri umferðarinnar: Valsmenn eru komnir með svakalegan risaskjá fyrir aftan annað markið. Boðið upp á hápunkta úr leiknum í hálfleik og svaka stuð.

Góðærið mætt aftur (Staðfest) Valur með risaskjá fyrir aftan annað markið. #fotboltinet pic.twitter.com/k5f8Ttt8zI

— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) May 15, 2017




Besti dómarinn: Dómararnir voru ekki að sprengja neina skala þessa umferðina. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson sýndi þó fína frammistöðu í erfiðum leik Vals og FH.



Poll umferðarinnar: Guðmundur Ársæll Guðmundsson fetaði í fótspor Grahams Poll með því að spjalda sama manninn tvisvar án þess að reka hann út af. Almarr Ormarsson þarf samt að taka út leikbann.



Dómaraumræða umferðarinnar: Tómas Meyer og Orri Sigurður Ómarsson.

Þeir @Meyerinn og @orrisigurdurO fóru saman yfir dómgæsluna eftir leik í kvöld #fotboltinet pic.twitter.com/dOr7Vl83tZ

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) May 15, 2017




Þið eigið lokaorðið... #fotboltinet

Sigurður Egill að fagna markinu sínu í kvöld :) #fotbolti #fotboltinet pic.twitter.com/GREFMdn5dL

— Eva Björk (@EvaBjork7) May 16, 2017

Var Almarr í alvörunni að tuða í dómaranum á 90.mín á spjaldi í stöðunni 2-0? Dýrt spaug. #fotboltinet

— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) May 15, 2017

Alltaf útlendingablaður í pepsimörkunum, en uppaldir leikmenn í hlutfalli við íbúafjölda? Uppaldir í hóp í 3. umferð:#fotboltinet #pepsi365 pic.twitter.com/vZhVCZHONt

— Hjálmar Agnarsson (@HjalmarRagnar) May 15, 2017
Milos Milojevic um borð í Baldri á leið til Vestmannaeyja.

Milos Milojevic um borð í Baldri á leið til Vestmannaeyja.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Víkingar voru hressari fyrir leik en eftir leik.

Víkingar voru hressari fyrir leik en eftir leik.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, fer ekki úr þessum fötum meðan KA er á flugi.

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, fer ekki úr þessum fötum meðan KA er á flugi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sigurður Víðisson var feykilega jákvæður þrátt fyrir tap.

Sigurður Víðisson var feykilega jákvæður þrátt fyrir tap.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dúllan sátt með umferðina.

Dúllan sátt með umferðina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic með dóttur sína.

Damir Muminovic með dóttur sína.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.