Fotbolti.net
16.05.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Breki Barkarson í Hött (Staðfest)

Úr leik hjá Hetti á síðasta tímabili.

Úr leik hjá Hetti á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Höttur hefur fengið að láni Breka Barkarson frá HK.

Breki, sem er tvítugur, er uppalinn hjá Breiðablik, en skipti yfir í HK í byrjun árs þaðan sem hann kemur á láni til Hattar.
„Breki, sem bjó fyrstu ár ævi sinnar á Egilsstöðum, kemur til með að styrkja Hött enn frekar en liðið ætlar sér að vera í topp baráttu þrátt fyrir að hafa verið spáð í 10 sæti af Fotbolti.net,\" segir í tilkynningu.

Höttur hefur ekki byrjað sérstaklega í 2. deild karla. Þeir eru eftir tvo leiki á botni deildarinnar með eitt stig.

Þeir gerðu 2-2 jafntefli gegn KF í síðasta leik, en fyrsti leikur þeirra endaði með 4-1 tapi gegn Víði.

Næsti leikur Hattar er gegn Völsungi á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.