Fotbolti.net
16.05.17 - 10:16
Magnús Már Einarsson

Eiður Aron í Val (Staðfest)

Eiður Aron er kominn til Valsmanna.

Eiður Aron er kominn til Valsmanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur fengið varnarmanninn Eið Aron Sigurbjörnsson í sínar raðir frá þýska félaginu Holstein Kiel. Félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.

Eiður gæti leikið sinn fyrsta leik með Val gegn Víkingi Ólafsvík í Borgunarbikarnum á fimmtudag.
Hinn 27 ára gamli Eiður hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Holstein Kiel í þýsku C-deildinni.

Eiður hefur leikið sjö leiki með Holstein Kiel í vetur en um helgina tryggði liðið sér sæti í þýsku B-deildinni. Eiður fékk því leyfi til að fara frá félaginu áður en lokaumferðin í Þýskalandi fer fram um næstu helgi.

Eiður er uppalinn hjá ÍBV og hefur lengst af leikið í Eyjum á ferli sínum. Hann hefur þó einnig leikið með Örebro í Svíþjóð og Sandnes Ulf í Noregi.

Núverandi miðvarðapar Vals stendur af Rasmus Christiansen og Orra Sigurði Ómarsson og á Eiður að keppa við þá um að spila í vörninni.

Valur er eitt af þremur liðum sem eru á toppi Pepsi-deildarinnar eftir þrjár umferðir, með sjö stig. Liðinu var spáð öðru sæti af Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.