Fotbolti.net
16.05.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Huginn fær breskan sóknarmann (Staðfest)

Huginn fær breskan sóknarmann (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Huginn hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir sumarið. Þeir eru búnir að semja við breska sóknarmanninn Aaron Redford.

Redford kemur upp úr akademíunni hjá Fulham, en hann lék síðast með Basingstoke í ensku neðri deildunum.
Hann er nú kominn til Hugins þar sem hann mun reyna fyrir sér í sumar. Þessi strákur er 21 árs gamall.

Huginn féll úr Inkasso-deildinni síðasta sumar og spilar í 2. deildinni í sumar. Þar er tveimur leikjum lokið, en Huginn er í níunda sæti með eitt stig eins og staðan er núna

Um síðustu helgi tapaði liðið gegn Aftureldingu á útivelli. Lokatölur urðu 3-2 fyrir Aftureldingu þar.

Leikmannafréttir.
Breski sóknarmaðurinn Aaron Redford er kominn með leikheimild hjá okkur. Aaron er 21 árs.#WelcomeAaron #ÁframHuginn

— Huginn FC (@HuginnFC) May 15, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.