16.05.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Margriet Samsom í Fjarðab/Hött/Leikni (Staðfest)

Úr leik hjá Fjarðab/Hetti/Leikni síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F. hefur fengið liðsstyrk fyrir sumarið.
Margriet Samson er komin, en hún mun spila með liðinu í 2. deild kvenna í sumar.

„Margriet er tvítugur miðjumaður, gríðarlega hávaxinn og sterk og mun eflast reynast liðinu mikill fengur,\" segir í tilkynningu.
Fjarðab/Höttur/Leiknir hefur leikið sinn fyrsta leik í 2. deildinni í sumar, en mótið hófst um helgina sem var að líða.
Þær spiluðu við Einherja á heimavelli, en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Liðið er því með eitt stig að einum leik loknum.

Margriet Samsom.

Mynd: Aðsend