Fotbolti.net
16.05.17 - 19:00
Mist Rúnarsdóttir

Þórdís María í Aftureldingu/Fram (Staðfest)

Þórdís María er komin aftur í boltann eftir barneignarfrí

Þórdís María er komin aftur í boltann eftir barneignarfrí

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Þórdís María Aikman hefur gert félagaskipti frá Val og yfir í Aftureldingu/Fram í 2.deildinni.
Þórdís María er að snúa aftur á völlinn eftir barneignarleyfi og kemur til með að berjast um markmannstöðuna við Selmu Líf Hlífarsdóttur.

Hún spilaði síðast sumarið 2015 en þá var hún aðalmarkvörður Vals í Pepsi-deildinni. Samtals hefur hún spilað 61 meistaraflokksleik, langflesta með Val í efstu deild en einnig nokkra með uppeldisfélagi sínu Þrótti í 1. deild. Þá hefur hún leikið 8 leiki með U19 ára landsliðinu.

Þórdís María er komin með leikheimild og er því lögleg með liðinu þegar það heimsækir Álftanes á föstudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.