Fotbolti.net
16.05.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Tomislav Misura í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Tomislav Misura í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynir Sandgerði fékk Tomislav Misura í sínar raðir áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Tomislav þekkir til í Sandgerði því hann var í láni frá Grindavík í fyrra. Þá skoraði hann fjögur mörk í fimmtán leikjum með Reyni í 3. deildinni.

Tomislav er 36 ára gamall reynslubolti en hann skoraði gegn FH í Meistaradeildinni árið 2005 með liði Neftchi Baku frá Aserbaídsjan.

Hann hefur í kjölfarið stundum verið nefndur Meistaradeildar-Misura.

Árið 2014 samdi Tomislav við Grindavík og það ár skoraði hann fimm mörk í 1. deildinni.

Árið 2015 skoraði Tomislav sjö mörk með Grindvíkingum en í fyrra lék hann síðan með Reyni á láni.

Reynismenn steinlágu 4-0 gegn Einherja á heimavelli í 1. umferð í 3. deildinni.

Næsti leikur Reynis er gegn Ægi á föstudag en Misura er kominn með leikheimild fyrir þann leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.