Fotbolti.net
16.05.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Úlfar Hrafn í Álftanes (Staðfest)

Úlfar í leik með Grindavík.

Úlfar í leik með Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Álftanes í 4. deild hefur fengið Úlfar Hrafn Pálsson til liðs við sig frá Grindavík fyrir tímabilið.

Úlfar Hrafn hefur verið mikið meiddur í fyrra og í ár en hann spilaði einungis tvo leiki þegar Grindavík fór upp úr Inkasso-deildinni í fyrra.

Úlfar er vinstri bakvörður en hann er uppalinn hjá Haukum þar sem hann hefur spilað lengst af á ferli sínum. Árið 2012 spilaði Úlfar einnig með Val í Pepsi-deildinni.

Álftanes hefur fengið fleiri fyrrum leikmenn Hauka í sínar raðir fyrir tímabilið en þar má nefna reynsluboltana og nafnana Hilmar Geir Eiðsson og Hilmar Rafn Emilsson.

Þjálfari Álftnesinga er Kristján Ómar Björnsson sem lék með Haukum á sínum tíma.
Álftanes vann C-deild Lengjubikarsins á dögunum en liðið mætir Drangey í fyrstu umferð í D-riðli 4. deildarinnar í næstu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.