ÍR hefur fengið kantmanninn Axel Sigurðarson í sínar raðir á láni frá KR.
Axel er tvítugur en hann var á láni hjá HK hluta af síðasta tímabili þar sem hann spilaði átta leiki í Inkasso-deildinni.
Axel á einnig fimm leiki að baki með KR í Pepsi-deildinni.
Axel er tvítugur en hann var á láni hjá HK hluta af síðasta tímabili þar sem hann spilaði átta leiki í Inkasso-deildinni.
Axel á einnig fimm leiki að baki með KR í Pepsi-deildinni.
ÍR er með þrjú stig eftir tvo leiki í Inkasso-deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Þrótti R. á föstudag.
KR hefur einnig lánað miðjumanninn unga Valtý Má Michaelsson til KV í 3. deildinni. Valtýr á fjóra leiki að baki í Pepsi-deildinni með KR.
Athugasemdir