Fotbolti.net
16.05.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hildur Antonsdóttir í HK/Víking (Staðfest)

Hildur Antonsdóttir í HK/Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
HK/Víkingur hefur fengið ansi góðan liðsstyrk í Pepsi-deild kvenna. Miðjumaðurinn öflugi Hildur Antonsdóttir er komin til félagsins á láni frá Breiðabliki.

Hildur hefur leikið 125 meistaraflokksleiki fyrir Val og Breiðablik á ferlinum og er fædd 1995.
Hildur lék síðustu mínúturnar í 3-1 sigri Blika á HK/Víkingi í gærkvöldi. Blikar eru á toppi deildarinnar með níu stig eftir þrjár umferðir. HK/Víkingur er með þrjú stig.

Hildur verið í toppbaráttu Pepsi-deildarinnar frá því hún byrjaði með Val 2011 og kemur með mikilvæga reynslu í HK/Víking.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.