Fimm leikmenn gengu í raðir kvennaliðs ÍR í gær á lokadegi félagaskiptagluggans en ÍR leikur í Inkasso-deildinni og tapaði fyrsta leik sínum á tímabilinu 10-0 gegn Þrótti R.
Liðið hefur hinsvegar styrkt sig fyrir sumarið með fimm leikmönnum sem koma frá Stjörnunni, Val og KR.
Þetta eru þær Gyða Kristín Guðmundsdóttir og Lára Mist Baldursdóttir sem koma á láni frá Stjörnunni. Telma Sif Búadóttir og Fjona Gaxholi frá Val og Indíana Óskarsdóttir kemur frá KR.
Allar hafa stelpurnar fengið leikheimild með ÍR og verða gjaldgengar ímeð liðinu næstkomandi sunnudag þegar ÍR tekur á móti Augnablik í 2. umferð Inkasso-deildarinnar.
Athugasemdir