Ingvar Ásbjörn Ingvarsson hefur yfirgefið Leikni í Breiðholti en hann gekk í raðir Þróttar í Vogum á gluggadeginum. Þróttarar eru með tvö stig eftir tvær umferðir í 2. deildinni.
Ingvar hefur ekki komið við sögu hjá Leikni í fyrstu leikjum tímabilsins en hann hefur spilað fjölda leikja með liðinu undanfarin þrjú ár. Hann spilar ýmist sem bakvörður eða kantmaður.
Ingvar hefur ekki komið við sögu hjá Leikni í fyrstu leikjum tímabilsins en hann hefur spilað fjölda leikja með liðinu undanfarin þrjú ár. Hann spilar ýmist sem bakvörður eða kantmaður.
Leiknir er með þrjú stig eftir tvær umferðir í Inkasso-deildinni.
Stefán Gíslason, þjálfari liðsins, hefur verið að minnka hóp sinn síðustu daga gluggans en sóknarmaðurinn ungi Magnús Andri Ólafsson var lánaður í Álftanes, Birkir Björnsson lánaður í KB og Natan Hjaltalín gekk í raðir Elliða.
Miðjumaðurinn Daði Bærings Halldórsson er þó kominn aftur í hópinn hjá Leikni en hann stundar nám í Bandaríkjumum og er klár í næsta leik sem er gegn Njarðvík annað kvöld.
Þróttur V. fékk einnig Zlatko Krickic til sín ásamt Oliver Helga Gíslasyni sem kemur á láni frá Haukum.
Síðustu gluggatíðindi dagsins úr Leiknisheimilinu. Toppmaðurinn @ingvarasbjorn yfirgefur Breiðholtið og gengur í raðir Þróttar í Vogum. Takk fyrir árin með okkur Ingvar! Höldum með þér (og Óla og Pape) í Vogunum! #StoltBreiðholts pic.twitter.com/7Eciczx8CM
-- Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) May 15, 2019
Athugasemdir