Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 16. maí 2022 18:57
Brynjar Ingi Erluson
Man City selur Porro til Sporting (Staðfest)
Pedro Porro verður áfram hjá Sporting
Pedro Porro verður áfram hjá Sporting
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City gekk í dag frá sölu á spænska hægri bakverðinum Pedro Porro en hann gerir þriggja ára samning við Sporting Lisbon.

Porro, sem er 22 ára gamall, kom til Man City frá Girona árið 2019 fyrir 11 milljónir punda en fékk aldrei tækifæri til að heilla á Englandi.

Hann var lánaður til Real Valladolid og gerði svo tveggja ára lánssamning við Sporting ári síðar.

Sporting fékk forkaupsrétt á leikmanninum og hefur nú nýtt hann en félagið greiðir 7,2 milljónir punda fyrir Porro.

Porro gerir þriggja ára samning og er með 45 milljón punda riftunarákvæði í samningnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner