Fotbolti.net
16.06.17 - 17:26
Elvar Geir Magnússon

Brighton setti félagsmet með kaupum á Mathew Ryan (Staðfest)

Mathew Ryan er nýr markvörður Brighton.

Mathew Ryan er nýr markvörður Brighton.

Canon

Mynd: Getty Images

Brighton hefur sett félagsmet með því að kaupa markvörðinn Mathew Ryan frá Valencia fyrir um 6 milljónir punda.

Ástralski landsliðsmaðurinn skrifaði undir fimm ára samning og er hann fyrstu kaup Brighton í sumar en liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina á liðnu tímabili.
Ryan verður aðalmarkvörður Brighton í stað David Stockdale sem er farinn til Birmingham City.

„Ég er í skýjunum með að við höfum náð að lokka Mathew til félagsins. Hann er frábær viðbót við hópinn á fyrsta tímabili okkar í ensku úrvalsdeildinni,\" segir Chris Hughton, stjóri Brighton.

Ryan er 25 ára gamall og er sem stendur með ástralska landsliðinu í Rússlandi að búa sig undir Álfukeppnina. Liðið mætir Þýskalandi á mánudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.