Fotbolti.net
16.06.19 - 10:30
Oddur Stefánsson

United að bjóða í Dumfries

United að bjóða í Dumfries
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur áhuga á Denzel Dumfries hægri bakverði PSV.
Mirror greinir frá því að United sé að undirbúa 25 milljón punda tilboð í Dumfries.

Ole Gunnar Solskjaer vill styrkja varnarlínu sína og Dumfries myndi kosta töluvert minna en Aron Wan Bissaka sem hefur verið orðaður við United á allt að 50 milljónir punda.

Dumfries var í liði Hollands sem sló England út og mætti Portúgal í úrslitum Þjóðardeildarinnar um daginn.

Dumfries gekk í raðir PSV frá Heerenveen fyrir fimm milljónir punda aðeins 12 mánuðum eftir að hann fór frá uppeldis félaginu sínu Sparta Rotterdam.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.