Fotbolti.net
16.06.26 - 16:31
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

Amorim tekinn við AC Milan (Staðfest)

Rekinn frá United í upphafi árs.

Rekinn frá United í upphafi árs.

Canon

Mynd: EPA

Ruben Amorim hefur tekið við sem nýr stjóri AC Milan. Hann tekkur við af Massimiliano Allegri og skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika um árs framlengingu.

Amorim var rekinn sem stjóri Man Utd í upphafi árs. Portúgalinn stýrði United alls í fjórtán mánuði en stóðst ekki væntingar. Þar áður gerði hann góða hluti með Sporting í heimalandinu.

AC Milan endaði í fimmta sæti undir stjórn Allegri á nýliðnu tímabili og missti liðið af Meistaradeildarsæti eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni.

Allegri fékk reisupassann að tímabilinu loknu en hann verður kynntur sem nýr stjóri Napoli síðar í vikunni.
Man Utd sparar 10 milljónir ef Milan ræður Amorim
TENGT EFNI

Man Utd sparar 10 milljónir ef Milan ræður Amorim

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.