Fotbolti.net
16.06.26 - 21:48
Ívar Björgvinsson

Emil saknar Jölla: Hafði trú á mér þegar enginn í Garðabæ hafði það

Auglýsing
Emil saknar Jölla: Hafði trú á mér þegar enginn í Garðabæ hafði það
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ótrúlegum 4-4 leik var rétt í þessu að ljúka á Samsungvellinum í 10. umferð Bestu deildar karla. Emil Atlason, leikmaður Stjörnunnar, skoraði þrennu og var maður leiksins, Fótbolti.net var á staðnum og tók hann í viðtal beint eftir leik.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 4 Breiðablik

„Þetta var frábær skemmtun eftir brösulega byrjun hjá okkur. Það voru miklar tilfinningar hjá okkur, við vinnum okkur svo inn í leikinn og kannski var bara jafntefli sanngjörn niðurstaða.''

Stjarnan byrjaði afar illa og var staðan 0-2 fyrir Breiðablik eftir sex mínútur og svo 0-3 eftir tæpan hálftíma.

„Eins og ég segi þá eru bara miklar tilfinningar sem við leikmenn höfum upplifað undanfarið gagnvart því að Jölli hafi verið látinn fara. Hann er maður sem verður sárt saknað en í dag var bara gleði og gaman og gott að ná góðu jafntefli.''

Jökull var látinn fara eftir tap gegn Aftureldingu í síðustu viku. Bjóst leikmannahópurinn við því?

„Þetta var gríðarlega erfitt, Jöllu hefur gert frábært starf hér hjá Stjörnunni. Hann hefur hjálpað mér mjög mikið, hann hafði trú á mér þegar enginn í Garðabæ hafði það. Það er mjög leiðinlegt að við gátum ekki borgað honum það og skilað góðri frammistöðu en nú er bara áfram gakk.''

Fékk Jökull að kveðja leikmannahópinn?

„Nei hann gerði það ekki, við erum búnir að heyra í honum, allavega ég og nokkrir aðrir líka. Þeir munu taka bolla með honum og hann er bara frábær maður.''

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.

Emil fór fögrum orðum um Jökul.

Emil fór fögrum orðum um Jökul.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.