Fotbolti.net
16.06.26 - 23:06
Auglýsingar

Vítaspyrnukeppni Fótbolti.net 17. júní - Svakaleg verðlaun

Verðlaunin eru komin út á völl

Verðlaunin eru komin út á völl

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Á morgun 17. júní ætlar Fótbolti.net að finna finna bestu vítaskyttu landsins.

Keppnin hefst á slaginu 11:00 á Þróttaravelli í Laugardal - keppendur eru hvattir til að mæta korteri fyrir.
Stefnt er að því ljúka keppni um 13:00 leytið en keppt verður á þrjú mörk í einu bæði hjá fullorðnum og þeim yngri.

Skráning fer fram á staðnum og er bæði hægt að greiða með korti og reiðufé, athugið að áskrifendur að Fótbolti.net fá frítt.

Þátttökugjaldið eru 1500 krónur og ekki er hægt að kaupa sig inn á ný eftir klúðrað vítí.

Mótið verður tvískipt en 5. flokkur og yngri (fæddir 2014 og yngri) keppa á minni mörk með markverði úr yngri flokka starfi Þróttara milli stangana. Allir fæddir 2013 og eldri þurfa að skora hjá markvörðum úr efstu deildum landsins.

Fyrstu verðlaun í fullorðins keppni eru alvöru ferðapakki fyrir sumarið sem inniheldur meðal annars afnot af Teslu Model Y og hjólhýsi frá Leiguhýsi.is í viku í sumar.

Fyrstu verðlaun í yngri keppni er 55" QLED sjónvarp frá Tölvutek - Happatreyja fylgir öllum sjónvörpum í Tölvutek meðan HM stendur svo vinningshafi mun einnig fá kóða fyrir happatreyju. Tveir vinningar í einum pakka.

Allur ágóði af keppninni rennur til Ingvars Jónssonar markvarðar Víkings og fjölskyldu hans.
Logi Tómasson setur mótið með fyrsta skoti keppninnar

Logi Tómasson setur mótið með fyrsta skoti keppninnar

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.