Fotbolti.net
16.06.26 - 22:08
Ívar Björgvinsson

Jón Þór: Eins og bíll að keyra á 100 kílómetra hraða inn í hringtorg

Auglýsing
Jón Þór: Eins og bíll að keyra á 100 kílómetra hraða inn í hringtorg
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og Breiðablik mættust í kvöld í ótrúlegum 4-4 fótboltaleik á Samsungvellinum í 10. umferð Bestu deildar karla. Fótbolti.net var á staðnum og tók viðtal við Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálfara Stjörnunnar, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 4 Breiðablik

„Klaufaleg byrjun á leiknum hjá okkur, við gefum þeim forskot sem við erum svo að elta í 85 mínútur og gerum það virkilega vel. Við komum okkur í stöðu í fyrri hálfleiknum til þess að jafna í 3-3 og svo að sama skapi þá komum við okkur í stöðu í seinni hálfleiknum til þess að vinna leikinn. Þetta var bara frábær karakter, vilji og liðsheild sem við sáum frá Stjörnuliðinu hér í dag.''

Óhætt er að segja að Jón Þór hafi upplifað martraðarbyrjun þar sem liðið var 0-2 undir eftir sex mínútur og svo 0-3 undir eftir tæpan hálftíma. Hvað fór í gegnum hausinn á Jóni á þeim tímapunkti?

„Það var ótrúlega margt sem fór í gegnum hausinn á mér þá. Auðvitað var ég bara svekktur með byrjunina okkar, sérstaklega fyrsta markið, síðan náum við okkur fínt á strik í stöðunni 0-2. Þá fór ég að hugsa hvort þetta yrði þessi leikur þar sem þeir taka momentin sín og nýta þau en ekki við.''

Hrannar Bogi, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, sem var í teymi Jökuls, fær gult spjald hér í dag en verður hann áfram í teymi Jóns Þórs?

„Já ég geri ráð fyrir því að hann verði það. Hann verður það þó að vísu ekki í næsta leik þar sem ÞÞÞ sá til þess að ég þarf að finna mér einhvern með mér til Eyja.''

Var það ákvörðun Jóns Þórs eða stjórnarinnar að hann yrði áfram?

„Já eins og ég sagði þá snerist þetta svolítið um að vera ekki að breyta því sem þarf ekki að breyta og áreitið á leikmenn hefur verið gríðarlega mikið um helgina og þeir þurftu ekkert á því að halda að ég kæmi hér inn og skapaði meira áreiti. Þegar svona atburðarás fer af stað hjá liði þá er þetta svoleiðis eins og bíll að keyra á 100 kílómetra hraða inn í hringtorg, hring eftir hring, þannig það þurfti bara aðeins að róa það.''

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.