Arnar vonar að dómarinn fari ekki í bann

Mbappe sækir að varnarmönnum Frakklands.

Mynd: EPA

Það átti sér stað mjög athyglisvert atvik í leik Frakklands og Senegal í riðlakeppninni á HM í kvöld.
Frakkland vann 3-1 sigur en áður en fyrsta markið kom í leikinn áttu Frakkar að fá vítaspyrnu þegar Sadio Mane tók Kylian Mbappe niður í teignum.

Alireza Faghani frá Ástralíu dæmdi ekkert en var sendur í skjáinn. Þar skoðaði hann atvikið nokkrum sinnum og mat það svo að Mbappe hefði verið að sækja snertinguna.
„Þetta er bara pjúra víti," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, á RÚV eftir leikinn.
„Þetta er fáránleg ákvörðun hjá honum. Ég elska þennan dómara, hann dæmdi frábærlega í leiknum og ég vona að hann fái ekki bann fyrir þetta. Hvernig hann sér samt að Mbappe er að reyna að fiska vítið, ég næ því bara ekki."
Það er yfirleitt þannig á HM að ef dómarar gera stór mistök þá fá þeir ekki að dæma fleiri leiki á mótinu. Talað var um það á RÚV að Faghani hefði annars dæmt leikinn vel og flæðið hefði verið gott.
Hægt er að sjá atvikið með því að smella hérna.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!