Fotbolti.net
16.07.17 - 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalska deildin

Federico Fazio kominn til Roma (Staðfest)

Federico Fazio í leik með Roma.

Federico Fazio í leik með Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Federico Fazio er genginn til liðs við Roma frá Tottenham, hann lék með Roma á síðasta tímabili á láni.
Hann kom til Tottenham árið 2014 frá Sevilla, hann á aðeins 20 leiki að baki fyrir liðið.

Hann hefur eytt mesta tíma sínum hjá Tottenham á láni, fyrst fór hann til Sevilla 2016 og svo haustið 2016 fór hann til Roma þar sem hann var út síðasta tímabil.

Þessi þrítugi Argentínu maður á fjóra landsleiki að baki og hefur skorað í þeim eitt mark.

Hann er nú orðinn eign Roma en liðið leikur í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili eftir að hafa náð 2. sætinu í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

We have reached an agreement with @OfficialASRoma for the permanent transfer of @Fede2Fazio. We wish Federico all the best for the future. pic.twitter.com/0VumzgkFf5

-- Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) July 15, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.